20
Djöfullinn fangelsaður
1 Eftir þetta sá ég engil koma frá himni og hélt hann á lykli sem gekk að undirdjúpunum. Auk þess hafði hann meðferðis þunga hlekki. 2-3 Hann greip drekann, gamla höggorminn, djöfulinn, – Satan – hlekkjaði hann og fleygði honum í botnlausa hyldýpið. Síðan lokaði hann því og læsti og þar varð Satan að dúsa í þúsund ár. Þetta gerði engillinn til þess að Satan gæti ekki leitt þjóðirnar afvega fyrr en að þessum þúsund árum liðnum, en þá átti að láta hann lausan í stuttan tíma.
4 Eftir þetta sá ég hásæti, sem í sátu einhverjir er fengið höfðu vald til að dæma. Ég sá sálir þeirra sem líflátnir höfðu verið fyrir að vitna um Jesú og predika Guðs orð. Þeir höfðu hvorki tilbeðið dýrið né líkneski þess né heldur fengið merki þess á enni sín eða hendur. Þessir höfðu vaknað aftur til lífsins og nú ríktu þeir með Kristi í þúsund ár.
5 Þetta er fyrri upprisan. Aðrir dauðir lifnuðu ekki fyrr en þúsund árin voru á enda. 6 Blessaðir og heilagir eru þeir, sem hlut eiga í fyrri upprisunni, því hinn annar dauði hefur ekkert vald yfir þeim. Þeir munu verða prestar Guðs og Krists og ríkja með honum í þúsund ár.
7 Að þúsund árum liðnum mun Satan verða leystur úr haldi. 8 Þá mun hann fara af stað til að leiða þjóðirnar afvega um alla jörðina og stefna þeim saman, ásamt Gog og Magog, til stríðs. 9 Mikill grúi mun safnast saman á sléttunni miklu og umkringja fólk Guðs og Jerúsalem, borgina elskuðu. En Guð mun láta eld falla af himni yfir árásarliðið og eyða því.
10 Þá mun djöflinum, honum sem leiddi þjóðirnar afvega, aftur verða fleygt í díkið, sem logar af eldi og brennisteini, þar sem bæði dýrið er og falsspámaðurinn og þessir munu kveljast dag og nótt um alla eilífð.
11 Eftir þetta sá ég stórt, hvítt hásæti og þann sem í því sat. Jörðin og himinhvolfið hurfu fyrir augliti hans, svo að þau sáust ekki. 12 Síðan sá ég hina dauðu, bæði stóra og smáa, þar sem þeir stóðu frammi fyrir Guði. Bækurnar voru opnaðar, þar á meðal bók lífsins, og hinir dauðu voru dæmdir eftir því sem skráð var í bókunum, hver og einn eftir verkum sínum. 13 Höfin skiluðu aftur þeim sem þar voru geymdir og jörðin og undirheimarnir þeim sem þar voru. Hver og einn var dæmdur samkvæmt verkum sínum. 14 Síðan var dauðanum og hel varpað í eldsdíkið. Þetta er hinn annar dauði: Eldsdíkið. 15 Sérhverjum þeim, sem ekki fannst skráður í lífsins bók, var fleygt í eldsdíkið.